Reykjanesbær á í GGE

Það virðist vera sem fréttamenn sem talað hafa við Árna Sigfússon, bæjarstjóra Reykjanesbæjar, viti ekki að Reykjanesbær er hluthafi í Geysir Green Energy (GGE).  Hann er ítrekað spurður um hvernig honum lítist á fyrirtækið og aldrei kemur fram í einu einasta viðtali að bærinn á í fyrirtækinu.

Því er ekki undarlegt að Árni skuli ætíð lýsa yfir hrifningu sinni á GGE.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sævar Einarsson

Er nú framsókn að hrópa úlfur úlfur, það er nú myndarlegt staff í kringum eignarhaldsfélag Samvinnutrygginga þar sem framsóknarfólk er á spenanum. Mér finnst undarlegt að það sé alveg hætt að fjalla um það mál, kannski hafi einhver háttsettur slegið á puttana hjá einhverjum ?

Sævar Einarsson, 2.7.2007 kl. 20:03

2 Smámynd: Eygló Þóra Harðardóttir

Hvað hafa Samvinnutryggingar með þennan pistil að gera?  Í pistlinum er ég að spyrja af hverju er Árni Sigfússon ekki spurður út í eign Reykjanesbæjar í GGE?

Ég skal alveg blogga seinna um að mér finnst mjög eðlilegt að fréttamenn spyrji út í Samvinnutryggingar og hvernig þær hafa verið notaðar, eða misnotaðar til að tryggja sér stórar eignir á borð við Búnaðarbankann og hugsanlega Icelandair.  

Og þú verður endilega að segja mér hvaða Framsóknarfólk þetta er sem er á spenanum, - það hefur nú ekki verið mér og mínum til framdráttar að vera Framsóknarmenn, nema síður sé. 

Eygló Þóra Harðardóttir, 2.7.2007 kl. 23:20

3 identicon

Aðsendt til vf.is| 23. júní 2005 | 15:15:03

Stöndum vörð um Hitaveitu Suðurnesja

Þorsteinn Erlingsson bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ skrifaði grein í Víkurfréttir 9. júní sl. um Hitaveitu Suðurnesja (HS) og það fóru um mig ónot að sjá glitta í hugmyndafræði ríkisstjórnarinnar um einkavinavæðinguna og að sjá að nú væri hún farin að sá sér innandyra hjá bæjarstjórn Reykjanesbæjar. Þorsteinn segir m.a. að virði hlutabréfa í HS hafi tvöfaldast á fjórum árum og að hlutur Reykjanesbæjar sem er um 40% og hafi aukið eignir Reykjanesbæjar um 2,4 milljónir króna á dag eða 876 milljónir króna á ári síðustu fjögur árin þ.e.a.s. síðan HS var breytt í hlutafélag. Þorsteinn byggir sína útreikninga á nýju verðmati hlutafjárs HS sem reiknast nú á um  18 - 20 milljarða króna og að hlutur Reykjanesbæjar sé því 7,2 - 8 milljarðar en sé hins vegar bókfært mun lægri eða um 5,1 milljarður króna við síðustu áramót.

Í ársreikningi fyrir árið 2004 kom fram að að eigið fé bæjarsjóðs Reykjanesbæjar væri 3,5 milljarðar í árslok.  Hér er að sjá þegar stuðst er við eigið fé bæjarins í ársreikningi annars vegar og svo eigið fé hans vegna HS hins vegar í hlutabréfum upp á 5,1 milljarð króna, komi í ljós 1,6 milljarða skekkja í útreikningum sem þýðir að hlutabréf bæjarins í HS sem nemur þessum mismuni a.m.k. er veðsettur vegna lána frá fjármálastofnunum sem hefur þá eftir kokkabókum Þorsteins ríflegt veð fyrir þeim skuldum.

Nú er lag að fá okkur bæjarbúa til að trúa því að best væri fyrir okkur að selja hlutabréf Reykjanesbæjar í HS á nýja verðmatinu því, jú, þá myndum við græða 2,1 - 2,9 milljarða króna svona auka en fyrst verða Sjálfstæðismenn auðvitað að tryggja sér áframhaldandi völd á næsta kjörtímabili áður en farið væri að ræða þetta opinberlega. Þeir munu því trúlega nota nýja verðmatið í næsta ársreikningi til að sýna fram á betri stöðu í bókhaldi um eigið fé bæjarsjóðs. Hér er ekki reiknað með að hr. Árni Sigfússon bæjarstjóri verði sérstaklega sendur út af örkinni af Sjálfstæðismönnum í kosningaferðalag með peningana sem yrðu þá teknir að láni út á þetta verðgildi. 

Hér má því áætla að þetta svokallaða nýja verðmat sé í raun hálfvirði eða minna miðað við það verð sem einkavinir Sjálfstæðisflokksins myndu vilja sjálfir fá fyrir hlutabréfin í HS þegar þeir væru búnir að komast yfir þau.  Í hvaða hæðum yrðu orkureikningarnir okkar þá?  Vegna þessa sem lýst er hér að ofan þurfum við að hafa vara á hvað meirihluti Sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ ætli sér með hlut okkar bæjarbúa í HS.  Bæjarmálafélag  Frjálslynda flokksins í Reykjanesbæ mun standa vörð um hagsmuni  Reykjanesbæjar og að óskabarn okkar allra Suðurnesjamanna lendi ekki í gini hákarlanna sem nú þegar eru farnir að bíða eftir bráð sinni. 

Baldvin Nielsen, Reykjanesbæ fyrrum félagi í Frjálslynda flokknum

Baldvin Nielsen (IP-tala skráð) 8.7.2007 kl. 10:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband