Að kenna gömlum hundi að sitja

Langt er síðan ríkisstjórninni var gerð grein fyrir að íslenskir bankar væru orðnir alltof stórir og skuldsettir fyrir íslenskt samfélag.  Fyrir lá fjöldi viðvarana,  sem voru algjörlega hunsaðar.  Forystumenn þjóðarinnar voru alltof önnum kafnir við að ferðast með einkaþotum heimshornanna á milli, jafnvel í boði útrásargreifanna.

Afleiðingin er sú að nú þarf þjóðin að taka á sig 700 milljarða króna neyðarlán frá alþjóðasamfélaginu, vegna hins algjöra dugleysis og ráðaleysis sem ríkisstjórnin hefur sýnt í viðbrögðum sínum við þeirri kreppu sem dunið hefur yfir.

Samkomulagið við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn felur í sér að ríkisstjórnin ætlar að halda áfram að reiða sig á krónuna, sem flestir telja handónýta, án þess að það komi sérstaklega fram hvernig þeir ætla að gera það.  Nefnt er mikilvægi stöðugleika, vextir verði hækkaðir enn meira, gjaldeyrishöftum beitt og já, bankar eiga ekki lengur að fá lán frá Seðlabankanum. 

Gamlar tuggur
Síðan segir í viljayfirlýsingu ríkisstjórnarinnar: „…Þetta mun gera okkur kleift að slaka á hömlum á lánveitingum Seðlabankans og smám saman reiða okkur aftur á stýrivexti sem aðalstjórntæki peningamála innan ramma sveigjanlegrar gengisstefnu.  Í þessu efni reiknum við með að krónan styrkist fljótt og að verðbólga á ársgrundvelli verði komin í 4,5% við lok ársins 2009 og að krónan styrkist enn frekar og verðbólgan haldi áfram að hjaðna árið 2010.“

Hljómar þetta ekki ansi kunnuglega?  Hversu oft höfum við ekki heyrt ríkisstjórnina, seðlabankann og greiningardeildirnar tala svona? Og enn hljómar platan, - þrátt fyrir að margir af okkar virtustu hagfræðingum segi að stjórnun peningamála með stýrivöxtum samhliða sveigjanlegri gengisstefnu gangi ekki fyrir þetta pínulitla myntkerfi okkar.

Það getur nefnilega verið erfitt að kenna gömlum hundi að sitja. Það eina sem þessi ríkisstjórnarhundur virðist kunna, er að leggjast á bakið og þykjast vera dauður.

(Birtist í Fréttablaðinu 24. nóvember 2008)


mbl.is Rætt um vantrauststillögu á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Sigurbergur Arason

Engar áhyggjur, þetta er platan sem getur ekki bilað .... getur ekki bilað .... getur ekki bilað ..... getur ekki bilað .....

(Fyrir þá sem muna eftir Vinyl-plötunum sem geta farið hring eftir hring á sama setningarbútnum)

Einar Sigurbergur Arason, 3.12.2008 kl. 02:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband