Hvar á að taka út?

Davíð Oddsson, forsætisráðherra, tók eitt skipti út alla þá fjármuni sem hann átti í KB-banka (áður Búnaðarbankinn og Kaupþing) þar sem honum blöskraði gjörsamlega þau laun sem bankastjórinn og starfandi stjórnarformaður voru með og lokaði reikningnum.

Davíð Oddsson, seðlabankastjóri, virðist ekki vera alveg jafn vandur að virðingu sinni og nafni hans forsætisráðherrann. 

Eða kannski veit hann að það tekur enginn neitt út úr Seðlabankanum? 

Ekki einu sinni bankastjórana sjálfa. 


mbl.is Mánaðarlaun í 1,4 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hann var bara fúll þá því hann gat ekki fengið hlut í spillingunni..

DoctorE (IP-tala skráð) 8.6.2007 kl. 16:09

2 identicon

Í þessu samhengi er reyndar gott að rifja upp að samningar KB við forstjóra og stjórnarformann, sem Davíð mótmælti og vísað er til, voru hvor að verðmæti ca. 1 milljarður króna.  Þegar hækkun launa aðalbankastjóra SÍ verður komin til framkvæmda tekur það hann rétt um 50 ár að vinna sér inn þá upphæð.

Þorsteinn Arnalds (IP-tala skráð) 9.6.2007 kl. 09:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband