Helgi Hjörvar skrifar!

Í Fréttablaðinu í morgun er grein eftir Helga Hjörvar sem heitir Sanngjarnar skuldaleiðréttingar.  Ég ætla að leyfa mér að birta hana orðrétt og fagna því heit og innilega að svona skrifi formaður efnhags- og skattanefndar og einn af framámönnum Samfylkingarinnar.

"Alþingi afgreiðir nú endurbætt og vönduð úrræði fyrir verst settu skuldarana. Einar sér eru slíkar lausnir þó líkt og að bera sólarljós inn í gluggalaust hús, því hætt er við að án víðtækra almennra skuldaleiðréttinga bætist við ný vandamál jafn harðan og leysist úr hinum eldri. Þess vegna er fagnaðarefni að fyrir Alþingi liggur einnig stjórnarfrumvarp félagsmálaráðherra um almennar aðgerðir vegna bílalána. Enn hefur þó ekki náðst samstaða um almennar aðgerðir vegna húsnæðislána almennings sem hafa ýmist orðið fyrir gengishruni eða verðbólgusprengju.

Þverpólitísk samstaða tókst í efnahags- og skattanefnd Alþingis fyrr á árinu um að kanna svigrúm bankanna til afskrifta. Af ársreikningi Landsbankans má ráða að bankinn sjálfur fékk hjá sínum kröfuhöfum 33% niðurfærslu á lánum einstaklinga. Einnig hefur fréttaflutningur verið af lánaflokki einnar fjármálastofnunar sem hafði verið færður niður um nær helming. Alls eru íbúðalán viðskiptabankanna yfir 500 milljarðar og afslátturinn sem þeim hefur verið veittur af kröfum tugmilljarðar. Bankarnir hafa gert almenn tilboð um skuldaleiðréttingar gengistengdra lána, en ekki verðtryggðra íslenskra húsnæðislána (utan Íslandsbanka - 10%) sem þó væri eðlilegt að gera tilkall til enda bera þeir og kröfuhafar þeirra verulega ábyrgð á forsendubresti sem viðskiptavinirnir líða nú fyrir og sanngjarnt að deila þeim kostnaði. Almennar leiðréttingar væru þó alltaf mun lægri en afsláttur til bankanna var því hann fer að verulegu leyti í tapaðar kröfur.

Skuldaleiðréttingar íslenskra húsnæðislána hafa hinsvegar alltaf strandað á því að lífeyrissjóðirnir og Íbúðalánasjóður yrðu að taka þátt í þeim. Það gæti annarsvegar leitt til skerðingar lífeyris sem enginn vill og hinsvegar gæti ríkið ekki lagt Íbúðalánasjóði til það sem þarf.


Ný staða

Seðlabanki Íslands gerði nýverið hagstæðan samning við Seðlabankann í Lúxemborg um kaup á skuldabréfapakka Avens sem innihélt íslensk íbúðabréf og innistæður. Skuldabréfin voru svo seld lífeyrissjóðunum og er talið hafa styrkt tryggingafræðilega stöðu sjóðanna um 1-2%, eða á þriðja tug milljarða. Stærstu sjóðirnir eru með liðlega 150 milljarða í húsnæðislánum til einstaklinga en nærri lætur að ávinningurinn af Avens samningnum gæti staðið undir 10-15% lækkun húsnæðislána lífeyrissjóðanna án þess að skerða þyrfti lífeyrisréttindi. Ekki getur talist óeðlilegt að ávinningur sjóðanna af íbúðabréfaviðskiptum renni til skuldaleiðréttinga húsnæðislána. Ábati ríkissjóðs af samningnum var ekki langt frá því sem lífeyrissjóðirnir nutu. Þar sem fyrst og fremst er um hagnað af íbúðabréfaviðskiptum að ræða væri ekki óeðlilegt að láta Íbúðalánasjóð njóta góðs af með sömu rökum og að ofan. Ef frekari eiginfjárframlög þyrfti til sjóðsins eða bankanna, þá er rétt að hafa í huga að endurfjármögnun bankakerfisins varð hátt í 200 milljörðum lægri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Þá má skoða ýmsar aðrar leiðir til eflingar Íbúðalánasjóði, s.s. hærri vaxtamun, merkja honum tekjur af sérstökum bankasköttum, skattleggja séreignasparnað og leggja í sjóðinn, o.s.frv. Þegar saman er lagt afskriftasvigrúm bankanna, ávinningur lífeyrissjóðanna og ríkissjóðs af Avens samningnum, auk annarra leiða er ljóst að skapa má allt að 100 milljarða svigrúm til almennra aðgerða.

Á næstu dögum fellur Hæstaréttardómur um lögmæti gengistenginga og getur þá skapast enn ný staða í skuldaleiðréttingamálum ef dómurinn fellur skuldurum í vil. Þegar þeirri réttaróvissu hefur verið eytt hafa stjórnmálaöflin í landinu tækifæri til að taka forystu og ná saman um sanngjarnar almennar skuldaleiðréttingar. Þær munu ekki leysa hvers manns vanda, né munu afskrifast 20% af öllu hjá öllum. Lántakendur geta heldur ekki vænst þess að lánveitendur beri allan skaðann sem 29,4% verðbólga á hálfu þriðja ári er, en eðlilegt er að honum sé deilt og kannski almennar aðgerðir eigi einkum að miða að þeim sem keyptu húsnæði á síðustu árum fyrir hrun.


Sáttaskref

Sumir hafa haft áhyggjur af því að almennar aðgerðir nýtist líka fólki sem ekki þarf á að halda. Þá er þrenns að gæta. Í fyrsta lagi hefur það fólk líka sætt óréttmætu vaxtaokri. Í öðru lagi, þó fólk eigi eignir umfram skuldir hefur auk tæplega 30% verðbólguskots, kaupmáttur rýrnað um 13% frá ársbyrjun 2008. Í þriðja lagi verður hægt að skattleggja þá sem við teljum ekki að eigi að njóta almennra aðgerða. Þeir sem hafa haft áhyggjur af skuldaradekri ættu að hafa í huga að án almennra aðgerða komum við einkum til móts við þá sem gengu lengst í skuldsetningu, en venjulegt vinnandi fólk sem hélt sig innan hámarkslána Íbúðalánanasjóðs fær engan stuðning þó lánin hafi hækkað um tæp 30% og kaupmáttur rýrnað um 13%. Það væru ekki góð skilaboð inn í framtíðina að skuldagleðin ein njóti skilnings.

Við munum ekki greiða úr fjármálum heimila hratt og vel nema saman fari greiðsluerfiðleikaúrræði og almennar aðgerðir sem skapa fólki almenn skilyrði. Stjórnvöld og fjármálakerfið þurfa líka að viðurkenna ábyrgð sína á vanda heimila. Skuldaleiðrétting er áþreifanleg leið til þess og mikilvægt skref til að byggja upp traust og ná sáttum í íslensku samfélagi."

(Birtist í Fréttablaðinu 15. júní 2010)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Það er greinilegt að Helgi Hjörvar hélt að þingi yrði slitið í dag. Svona skrifa gjarnan stjórnmálamenn með slæma samvisku. Þau eru búin að hafa 14 mánuði til að vinda ofan af klúðrinu en lítið gert. Ef þingi verður fram haldið um ótiltekinn tíma þá skaltu herma þessi orð upp á hann. En varðandi ræðuna þína í gærkvöldi þá verð ég að segja að ekki bólar mikið á þeim nýja Framsóknarflokk sem þú talaðir um! Flokkurinn dragnast með of mörg lík í lestinni til að öðlast tiltrú. Útreið flokksins og flokkadrættir hér í Reykjavík staðfesta það. Eigendafélag flokksins er snarlifandi og vill engar breytingar. Framsóknarmenn sem vilja siðbót verða að gera uppreisn á næsta landsþingi og taka flokkinn yfir.

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 15.6.2010 kl. 10:06

2 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Kaldhæðið að Helgi Hjörvar skuldi nú allt í einu taka undir hugmyndir Framsóknarmanna.

Skyldi hann einnig fara fram á Félagsmálaráðherra, að sá dragi til baka ummæli um þær hugmyndir framsóknaramanna, þess eðlis að þau hygli ríkum á kostnað þeirra fátæku.

Nú liggur beint við, að Helgi hafi áttað sig á, að í reynd séu einmitt aðferði félagsmálaráðherra að gera akkúrat það.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 15.6.2010 kl. 12:02

3 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Kaldhæðið að Helgi Hjörvar skuli nú allt í einu taka undir hugmyndir Framsóknarmanna.

Skyldi hann einnig fara fram á við Félagsmálaráðherra, að sá dragi til baka ummæli um þær hugmyndir framsóknaramanna, þess eðlis að þær hygli ríkum á kostnað þeirra fátækra.

Nú liggur beint við, að Helgi hafi áttað sig á, að í reynd séu einmitt aðferðir félagsmálaráðherra að gera akkúrat það.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 15.6.2010 kl. 12:03

4 Smámynd: Kristinn Snævar Jónsson

Sammála þessu Eygló. Þessu máli hefði mátt og átt að koma í umræðu og aðgerða miklu fyrr, en betra er seint en aldrei og vonandi að einhverjir viðkomandi skuldarar verði enn á fjárhagslífi þegar eitthvað róttækt verður gert til leiðréttinga í þessum dúr.

Ég hef áður ritað um þetta í athugasemdum mínum við fréttaflutning af þessu máli, m.a. tengt þínum ræðum og ritum.

Einnig hef ég viðrað róttækar hugmyndir mínar í þessa veru sem hafa sanngirni og réttlæti að leiðarljósi um jafna skiptingum áhættu og ávinnings/skaða milli lántakenda og lánaveitenda.

Kristinn Snævar Jónsson, 15.6.2010 kl. 16:05

5 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Það er gott til þess að vita að til séu menn með nokkurnveginn heilbrigðan hugsanahátt í Samfylkingunni.

Hefði samt ekki verið skynsamlegra af Helga að koma þessum hugmyndum inn hjá sínum flokksfélugum á þingi.

Gunnar Heiðarsson, 15.6.2010 kl. 22:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband