Írak, Íran, Reykjanesbær?

Samkvæmt frétt á vef Víkurfrétta lýsti forseti bæjarráðs Reykjanesbæjar því yfir á síðasta bæjarstjórnarfundi að Reykjanesbær hyggðist ekki koma sér upp kjarnorkuvopnum.  Ég vona innilega að Valgerði Sverrisdóttur takist að sannfæra Bush, Bandaríkjaforseta um að Keflvíkingar segi satt og rétt frá.  Við sjáum jú hversu illa Írakar fóru út úr því að þvertaka fyrir að eiga gjöreyðingarvopn.

Án gríns hefði maður haldið að sveitarstjórnarmenn hefðu um margt mikilvægara að ræða en þetta.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur fannberg

vonandi trúir Búskurinn þessu annars kemur kaninn aftur

Ólafur fannberg, 11.1.2007 kl. 18:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband