Ekki orðlaus...

Ég er nokkuð viss um að Sjálfstæðismenn hringinn í kringum landið óska þess að Davíð Oddsson hefði svona einu sinni orðið orðlaus...

Um leið og þeir hugsuðu að þarna hafi allavega 5% fokið í næstu skoðanakönnun.

 

 

 

 


mbl.is Víkingar með Samfylkingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Þetta var ekki gott fyrir Sjallana.

En annað Eygló.

Þú ert fallegasta konan á Alþingi ..

Níels A. Ársælsson., 28.3.2009 kl. 21:23

2 Smámynd: Benedikta E

Jú - Sigurbjörg víst iðraðist hann. Hann sagði að Sjálfstæðisflokkurinn ætti að biðja þjóðina afsökunar á því  að hafa bjargað pólitísku lífi Samfylkingarinnar árið 2007

Benedikta E, 29.3.2009 kl. 01:50

3 Smámynd: Eyjólfur Sturlaugsson

Engin hætta á að Davíð hafi eyðilagt fylgið.  Sjálfstæðismenn gleyma ræðunni um leið og nýr formaður fær kosningu.

ES

Eyjólfur Sturlaugsson, 29.3.2009 kl. 08:17

4 identicon

Tja, það getur verið að einhverjir hafi ekki litist á, en margir kepptust við að sitja við fótskör meistara síns eftir að hafa hrópað hósíanna!

Hvernig getur svona stór hluti þjóðarinnar sagt sig kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Mér er það mikil ráðgáta!

BB (IP-tala skráð) 29.3.2009 kl. 09:20

5 identicon

Davíð opnaði munninn og sagði tvö orð, gerði svo hlé á máli sínu þá klappaði allur salurinn eins og salurinn væri fullur af litlum hlýðnum skólastrákum. Bíddu er það þannig að Sjálfstæðismönnum finnst að þeir séu algjörlega saklausir af efnahagshruninu, er þá ekkert að marka þetta tal um afsökunarbeiðni? Davíð líkti sér á mjög ósmekklegan hátt við ekki minni mann en sjálfan Jesús Krist. Svo gerði hann grín af kvennréttindabaráttu með því að gefa skít í það að nektardans væri bannaður. Landsfundargestir tóku undir og klöppuðu mansali lof í lófa. Svo tók Davíð sig til og gerði grín af alshæmer. Hann talaði einnig mikið um stjórnarskránna en gleymdi auðvitað að minnast á það að hann hefði marg brotið það plagg sjálfur. Hann líkti fólkinu sem mótmælti þessu ástndi sem hér hefur ríkt við arfa, takk fyrir það Davíð. ósmekklegt var einnig að hlusta á manninn gera grín af útliti Jóhönnu (,,hún lítur reyndar út ein og álfur út úr hól”) Sigurðar og því að hún væri samkynhneigð. Svo sagði hann að það væru mörg ár síðan hann hafi farið að hafa áhyggjur af bönkunum, bíddu, út af hverju gerði hann þá ekkert, út af hverju sagði hann þá ekkert, út af hverju í andskotanum gerði valdamesti maður íslands ekki rassgat til að koma í veg fyrir þetta, nei hann montaði sig frekar fyrir hverjar kosningar á því hvað kæmi mikið í ríkissjóð frá bönkunum. Það sem stendur eftir þessa ræðu er það eitt að maðurinn er svo firrtur að hann heldur því blákalt fram að Sjálfstæðisflokkurinn sé bara algjörlega saklaus, hafi í raun bara ekki komið nálægt þessu. Já mikið getum við íslendingar þakkað fyrir að hafa átt mann eins og Davíð Oddsson, svo þarf enginn að segja mér það að ef ráðherranefndin sem öllu réði um sölu bankanna hefði viljað selja bankana í dreifðri eingaraðild þá hefði það ekki verið neitt mál, svo það er ansi ódýrt að klína því á Samfylkinguna að bankarnir hafi verið seldir vinum Sjálfstæðis og Framsóknarflokksins. Það er sem sagt bara áframhaldandi eintómur HROKI úr þessari áttinni! Einnig var aumkunarvert að hlusta á meðbærður fíflsins hlægja og klappa með öllu ruglinu.

Valsól (IP-tala skráð) 29.3.2009 kl. 12:03

6 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Ræða Davíðs var beinskeytt og góð. Hitti andstæðingana illa.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 29.3.2009 kl. 12:08

7 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Þegar Jesú talar þá hlýtur það að vera rétt, sem hann segir.

Sigurður M Grétarsson, 29.3.2009 kl. 19:57

8 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Davíð sagði að sjálfsögðu satt um Samfylkinguna eins og hann hefur alltaf gert.Við Suðurnesjamenn erum honum að sjálfsögðu sammála, og þú örugglega líka Eygló.Kveðja úr Sandgerði.

Sigurgeir Jónsson, 30.3.2009 kl. 09:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband