V/ fréttatilkynningar NBI

Í fréttatilkynningu frá Nýja Landsbankanum (NBI) er því haldið fram ég fari með rangt mál um stöðu og framtíðarhorfur bankans.  Því hafna ég alfarið.

Á fundi viðskiptanefndar 14. febrúar kom fram að óvissa ríkir um raunvirði eigna bankans, þ.e.a.s. hversu stór hluti þeirra sé í íslenskum krónum eða erlendum myntum. Á sínum tíma var NBI endurreistur undir þeim formerkjum að stór hluti eignasafnsins væri í erlendri mynt. Því þótti mikilvægt að endurfjármögnun bankans yrði m.a. í formi erlends skuldabréfs á milli nýja og gamla bankans til að rétta af gjaldeyrisjöfnuð nýja bankans.

Skuldir og eignir í erlendri mynt yrðu þannig í jafnvægi.

Gengið var frá endurfjármögnun NBI þrátt fyrir að á þeim tíma hefði ráðamönnum átt að vera ljóst að mikil óvissa væri um lögmæti gengistryggðra lána, verðmæti lánasafnsins og getu bankans til að endurgreiða skuldabréfið í erlendri mynt. Bankinn varð því of stór með lág meðalgæði útlána, auk þess sem nauðsynlegt var að leiðrétta reiknaða skekkju í gjaldeyrisjöfnuði bankans með útgáfu skuldabréfs á milli gamla og nýja bankans.

Þetta var vandarmál sem var fyrirsjáanlegt og lagði þingflokkur Framsóknarmanna fram þingsályktun um endurreisn íslensku bankanna í júlí 2009, sem byggði á því að stærð hins nýja bankakerfis miðaðist við innlendar innstæður en ekki innlendar eignir.  Þar var bent á að ef endurskipulagning bankakerfisins færi úrskeiðis væri hætta á að ríkið yrði aftur að leggja til meira eigið fé.

Þessar ábendingar voru hunsaðar og samkomulag um endurreisn bankakerfisins undirritað í lok árs 2009.

Meira eigið fé í krónum leysir þó ekki vandann varðandi framboð á erlendum gjaldeyri, en það á eftir að vera viðvarandi vandamál á næstu árum í ljósi mikilla erlendra skulda þjóðarbúsins.  Það er von mín að það muni reynast NBI auðvelt að kaupa gjaldeyri til að standa við skilmála skuldabréfsins, en um það ríkir mikil óvissa.

Óvissan er til staðar, það var staðfest á fundi viðskiptanefndar og því stend ég við orð mín.
--------------------------
Þingsályktun um endurreisn bankakerfisins.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnar Einarsson

Well,,,,ef framsókn hefði ekki rænt bönkunum værum við ekki í þessu bulli.

Ragnar Einarsson, 15.2.2011 kl. 00:47

2 Smámynd: Ragnar Einarsson

Spurðu Finn afhverju er hann ríkur og láttu hann ljúga að þér.

Ragnar Einarsson, 15.2.2011 kl. 00:48

3 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Er vitað hvað Elín Sigfúsdóttir og Björgólfur Guðmundsson voru að gera frá falli bankans og þangað til Ásmundur skipaði sjálfan sig bankastjóra?  Mér finnst að þingmenn eigi að krefjast sérrannsóknar á falli Landsbankans og sérstaklega endurreisn NBI og hvaða eignir voru færðar yfir og síðan afskrifaðar. Mjög brýnt er að rannsaka strax störf skilanefndarinnar og bankastjórnar fyrstu mánuði eftir hrun og það stendur engum nær en nefndum þingsins

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 15.2.2011 kl. 06:36

4 Smámynd: Guðmundur Kristinn Þórðarson

Allt rétt sem þú segir í greininni þettað er sama ástand og fyrir hrun menn telja sig komast upp með að segja ósatt

Guðmundur Kristinn Þórðarson, 15.2.2011 kl. 11:20

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gott hjá þér að vekja athygli á þessu máli Eygló.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.2.2011 kl. 13:05

6 Smámynd: Jón Magnússon

Þakka þér fyrir  að benda á þetta Eygló þetta er bæði athyglis- og umhugsunarvert svo ekki sé meira sagt.

Jón Magnússon, 15.2.2011 kl. 15:22

7 identicon

Þú átt heiður skilinn fyrir málefnalegan og hófstilltan en þó einarðan málflutning. Gott að vita af því að á þingi eru líka þingmenn, sem rökstyðja mál sitt, nóg er af þeim sem slá um sig með upphrópunum.  Haltu áfram svona.

HIH (IP-tala skráð) 15.2.2011 kl. 15:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband