Landhelgisgæslan á Suðurnes

Ríkisstjórnin hélt nýlega fund á Suðurnesjum þar sem samþykkt var aðgerðaáætlun til að takast á við hið mikla atvinnuleysi sem þar ríkir.  Þar var innanríkisráðherra falið að skoða vandlega kosti þess að flytja starfsemi Landhelgisgæslunnar á öryggissvæðið á Miðnesheiði og að gerð yrði hagkvæmniathugun á þeim kosti. Niðurstöður eiga að liggja fyrir í byrjun febrúar.

Hugmyndin um flutning Landhelgisgæslunnar á Suðurnesin er ekki ný af nálinni og voru þingsályktunartillögur þess efnis fluttar á 116. löggjafarþingi og 130. löggjafarþingi af þingmönnunum Árna R. Árnasyni og Hjálmari Árnasyni, en voru ekki útræddar.

Höfuðstöðvar Landhelgisgæslunnar eru í Reykjavík.  Þar er skrifstofuhald, þar liggja 3 skip hennar á milli verkefna og þar er flugkostur hennar geymdur, flugvél og tvær þyrlur. Hjá stofnuninni starfa um 150 manns auk tuga nýrra starfsmanna frá Varnarmálastofnun.

Oft getur verið erfitt að flytja heila stofnun, en ýmislegt mælir með því á þessum tímapunkti.  Frá og með síðustu áramótum tók Landhelgisgæslan við stórum hluta verkefna Varnarmálastofnunar sem staðsett var á gamla varnarliðssvæðinu á Suðurnesjum.  Framundan er því mikið starf hjá starfsmönnum við að sameina og aðlaga verkefni þessara tveggja stofnana í nýja heild og gæti flutningur í nýrri og betri aðstöðu verið mikilvægur þáttur í að byggja upp Landhelgisgæsluna.

Varnarmálastofnun bjó yfir góðum húsakosti sem gæti hentað mjög vel fyrir starfsemi Landhelgisgæslunnar, en fram hefur komið í máli forstjóra gæslunnar að húsakostur stofnunarinnar gæti verið betri. Besti flugvöllur landsins er staðsettur á Suðurnesjum.   Hafnaraðstaða er þar næg og varðskipin væru óneitanlega nokkru nærri almennum miðum en í Reykjavíkurhöfn.  Síðast en ekki síst þá hafa íbúar svæðisins mikla reynslu og þekkingu af því að þjónusta starfsemi af þessu tagi. Því eru bæði öryggis- og rekstrarleg rök sem mæla með flutningi. Til viðbótar eru mikilvæg byggðarök. Hvergi hefur atvinnuleysi verið meira en á Suðurnesjum enda skildi brottför varnarliðsins, hrun byggingageirans og bankakreppan eftir svöðusár á atvinnulífi svæðisins.

Fulltrúar stjórnmálaflokka hafa lýst sig fylgjandi flutningi Landhelgisgæslunnar og ályktaði félagsfundur VG á Suðurnesjum síðast um málið í október 2010 þar sem stjórnvöld voru hvött til að flytja Landhelgisgæsluna og starfsemi henni tengda á Suðurnesin.

Því hvet ég innanríkisráðherra til taka af skarið og styðja flutning Landhelgisgæslunnar á Suðurnesin.

(Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 11. janúar 2011)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Sæl Eygló.

Ég er sammála því að Landhelgisgæslan væri betur staðsett á Suðurnesjum, ekki vegna atvinnuástandsins þar, heldur aðstöðunnar og staðsetningar.

Við aukum ekki atvinnu í landinu með því að færa störf milli héraða. Flestir þeir sem nú starfa fyrir Landhelgisgæsluna munu fylgja henni þó höfuðstöðvar og aðstaða verði færð á Suðurnes. Afleit störf, þjónusta og annað, munu hugsanlega falla Suðurnesjamönnum í vil, en að sama skapi missa einhverjir Reykvíkingar vinnu á móti. Þannig að tala um að færa stofnunina til að auka störf er ekki rökrétt. Það er hins vegar hægt að segja að verið sé að jafna atvinnuleysið.

Helst hefði ég viljað sjá að Landhelgisgæslan gæti haft þrjár til fjórar starfsstöðvar á landinu, eina í hverjum fjórðung (þriðjung). Það myndi stytta útkallstíma Gæslunnar verulega þegar slys ber að höndum. Þetta er augljóslega aukinn kostnaður fyrir hana og vart hægt að tala um slíkt nú. Þetta gæti hins vegar verið framtíðarsýn.

Gunnar Heiðarsson, 14.1.2011 kl. 08:33

2 Smámynd: Aðalsteinn Agnarsson

Frjálsar handfæra eða smábátaveiðar myndu leysa byggða, fátæktar og

atvinnuvanda Íslendinga !

Aðalsteinn Agnarsson, 15.1.2011 kl. 17:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband